14maí
Ætla að prófa einu sinni enn að flytja mig um set.. útskýri betur á hinni síðunni.
Slóðin er
www.123.is/valalaufey Sjáumst þar..
03maí
Hæ hæ
Ákvað að skella inn einni færslu áður en að mánuður liði frá seinasta bloggi..
Annars að reyna að læra fyrir þetta próf mitt, vá hvað ég vildi óska að ég gæti bara verið í skóla á daginn í staðin fyrir að vera í fjarnámi. Ekkert alltof auðvelt að vinna á daginn sinna skottunni og svo loksins þegar hún sofnar þá getur maður skellt sér í lærdóminn og þá er mín dottandi yfir bókunum... Veit ekki hvað ég er búin að lesa sama kaflann í The Hobbit oft :)
Annars vorum við vinkonurnar að byrja á átaks námskeiði í laugum og vá hvernig er hægt að gleyma tilfinningunni eftir æfingu, ótrúlegt að maður hætti að fara og láti líða marga mánuði/ár á milli þess sem maður drattast af stað. Við byrjuðum á mánudag og er allt inní þessu námskeiði, matardagbók, matarprógramm, vigtun, fitumæling, tími hjá einkaþjálfara og sitthvað fleira. Mjög sniðugt og líka bara konur sem skiptir hellings máli þegar maður hefur ekki farið lengi.
Fyrsta vigtunin í dag og ég fékk sjokkkk já mín búin að þyngjast þennan fjanda síðan um jólin. Ekki alveg að gera sig og er ég búin að setja mér markmið og skal ég ná því markmiði, Ég mun, skal og ætla að ná því. Verð nú að geta spókað mig um á bikiní á Tenerife :) Já var ekkert búin að koma því að hér. Við mæðgur erum að fara með múttu og co til Tenerife í 3 vikur í júlí og við getum ekki beðið. Akkúrat 2 mánuðir til stefnu núna í dag 3 maí.
Annars er orðið fínt að gera í að farða og komin í smá verkefni áfram með henni Ásdísi skvísu. Mjög gaman að því og er planið að fara tvisvar til Akureyrar í maí og júní þá verða sýningar þar.
Mig er farið að langa að læra meira í förðun, er alveg að finna mig í því og væri meira en gaman að drífa sig í að læra meira og svo er ljósmyndunin alltaf að heilla mig meira og meira. Myndi langa svooo út að læra hana, já maður má nú alveg láta sig dreyma er það ekki :)
En jæja lesa einn kafla fyrir svefninn.
Bið að heilsa og þið yndislega fólk sem ratar ennþá hingað inn þá er ótrúlega gaman að lesa hvað þið hafið að segja líka í commentakerfið :)
Já Anna Lilja ef þú sérð þetta, svaraðu símanum skvís. Erum við nokkuð hættar við ein búin að bætast í hópinn ? :)
13apríl
Afmælisbarn dagsins er dóttir mín Kolbrún Camilla.
Hún er orðin 3 ára gömul og finnst mér það stundum hálf ótrúlegt.
Til hamingju með daginn ástin mín, hlakka til að dekra við þig eftir leikskóla.

Þær systur saman Hallbjörg 6 ára og Kolbrún Camilla 3 ára. Yndislegar.
06apríl
Þá er komið páskafrí og í laaaaangan tíma veit ég ekkert hvað ég á að gera af mér, dóttir mín fór í morgun til pabba síns og verður fram á Þriðjudag, er svona rétt að ná mér af því. Mín fékk bara tár í augun í morgun að hún væri að fara svona lengi og missa af páskunum með henni. En ætli ég megi nokkuð vera of eigingjörn á litluna mína og sleppa henni svona einstaka sinnum :)
Hvað er þá annað að gera en djamm um páskana?? Veit bara ekkert hvort það er eitthvað annað en venjulega um að vera. Sá reyndar að það væru sveitaböll með Á móti sól á Akranesi og rétt hjá Selfossi spurning um að breyta aðeins til og skella sér á eitt svoleiðis..
Hmmm ef einhver les hérna ennþá, þó svo ég skrifi alllltof sjaldan þá megið þið alveg koma með tillögur að góðu kvöldi:)
Hef þetta stutt í dag, ætla að skella mér í bað og vakna uppúr þessari leti..
20febrúar
Jæja ákvað að skella mér við tölvuna og skrifa aðeins niður, margt búið að gera undanfarna daga og vikur og akkúrat þegar mín á að vera að læra undir próf þá finn ég mér að sjálfsögðu eitthvað annað að gera. En ég var að byrja í fjarnámi, ákvað að byrja á einu fagi til að byrja með því þetta var fyrsta tækifæri mitt í mörg ár til að leyfa mér að fara í nám aftur.
Talið niður..
*Er búin að taka alveg nokkur djömmin í janúar og febrúar og alveg komin tími að slaka á þar. Mér finnst reyndar mikið djammað þegar það er tvisvar í mánuði einsog hefur verið hjá mér núna því ég var nú alveg hætt þessu. Maður djammaði nú meira í gamla daga og fannst ekkert mikið að djammað þegar það var um hverja helgi úff gæti það ekki í dag.
*Soffía mín flutti í borgina með fjölskylduna og var og er yndislegt að endurheimta þau aftur, höfum búið ótrúlega lítið nálægt hvor annarri í einhver 5 ár og komin tími á að vera nálægt og er planað að byrja með saumó sem fyrst og gera allt sem okkur hefur langað til og talað um í gegnum síma í öll þessi ár :)
*Fór í 1 árs afmæli til litla frænda og er yndislegt að vera búin að fylgjast með honum vaxa og þroskast þetta ár, hann á alltaf risastóran stað í hjarta mínu og kom hann á tíma sem ég mun aldrei gleyma en heldur ekki alveg vettvangur hér til að ræða það..
*Eftir afmælið fékk Kolbrún að gista hjá frænda sínum, Söru og Sverri og ég fór út að borða með Stelpunum sem voru að vinna saman á Gauknum og var það alveg frábært að hitta þær allar aftur, tvær bumbulínur í hópnum og flestar komnar með börn. Aðeins annað umræðuefni en í denn :)
*Ég fékk ógó strepptakokka og var heima í heila viku ojojojojoj hef nú ekki orðið svona lasin lengi og var Kolbrún búin að vera lasin helgina á undan og tók svo við mér með enn eina lungnabólguna eftir mín veikindi, talandi um að maður hafi verið orðin hvííííítur af inniveru og skellti ég mér í nokkra ljósatíma eftir þetta allt saman:) Vona nú að heilsan hjá litlunni minni fari að skána er ekki orðið hægt hvað hún nær sér í allt saman þessi elska.
*Er búin að breyta íbúðinni minni örugglega svona 3svar síðan um jól, alveg ótrúlegt hvað íbúðin er leiðinleg í laginu og svo erfitt að pússla stofunni minni saman. En held ég sé loksins komin með hana einsog ég vill og líður vel. Skiptir nú mestu að hafa kósý hjá okkur mæðgum.. Enda er fátt sem okkur finnst betra mæðgum en að kúra uppí sófa og hafa það kósý :)
*Fórum á laugardaginn í dekur vinkonurnar, Ég, Soffía, Ragnheiður og Kolla og kom Anna Lilja svo til okkar um kvöldið. En við skelltum okkur í Baðstofuna í Laugum, Mæli svooo með þessu. Talandi um að geta slakað á í 8 mismunandi gufum minnir mig, pottur með sjávarsalti, bara kósý. Herbergi með einhverjum 20 lazyboy og arineld í miðjunni gæti nú legið þar tímunum saman ef við hefðum haft tíma í það. Tásubað fyrir okkur 4 hlið við hlið. Og já veitingastaður líka :) Við skelltum okkur á bikiní ja og reyndar sloppum líka og fengum okkur að borða og hvítvín með, alveg stórskrítið að sitja þarna með fólk í kringum sig og hálfnakin að borða, en bara gaman. Ætlum að reyna að gera þetta einu sinni í mánuði saman, alveg nauðsynlegt.
*Ragnheiður var að opna Snyrtistofuna Facial sem er snyrtistofa Niðri hjá Toni & Guy og mæli ég eindregið með þeim vinkonum, búin að fara í fullt af meðferðum hjá henni Röggu minni :)
En jæja prófið verður á föstudag þó ég gæti haldið áfram að skrifa endalaust hér inn núna en vonandi kemur blogg andinn yfir mig aftur bráðlega.
Enda þetta á nokkrum myndum frá laugardagskvöldinu..

Soffía og ég.

Soffía og Kolla.

Anna Lilja og Soffía.

Ragnheiður Birna.

Ég og Soffía ...

Ein svona í lokin..
08febrúar
Færeyskan er snillllllld.....
Lyktakanningin 2007 - er peran í lagi?
At lyktirnar lýsa, er tín ábyrgd!
Tað er rætt og slætt vandamikið, at bilar koyra við ljósum, sum ikki
eru í lagi.
Tað skal ikki nógv meira til enn at ganga eina ferð rundan um
bilin og hyggja eftir, um øll ljósini lýsa, sum tey eiga.
Best er at vera tvey um uppgávuna:
annað situr í bilinum og tendrar fjarljósini, blunkljósini og
bakkiljósini og traðkar á bremsuna, so bremsuljósini lýsa.
So er tað aftur píkatíð
Frá sunnudegnum 15. oktober er aftur loyvt at brúka píkur. (nagla-dekk)
Tað kann hugsast, at sumir verða freistaðir at seta píkurnar upp
undir komandi vikuskiftið, en ikki ráðiligt at seta píkarnar undir
til dømis fríggjadagin ella leygardagin, bara frá sunnudegnum
21janúar
Stundum hugsar maður ekki lengra en að manni líði vel sé fullkomlega búin að átta sig á hlutunum og virkilega líði vel..
Þannig hefur mér liðið undanfarið, hélt bara að lífið væri auðvelt og ég þyrfti ekkert meira. En svo hittir maður kannski eina manneskju sem tengist pínulítið að hlutunum og áttar sig á að maður hefur ekki einu sinni talað um hlutina og hvað þá komist yfir þá.
Það sem ég hef ekki komist yfir og virkilega finn til í hjartanu Þegar ég hugsa um hana og virkilega held að ég muni aldrei komast yfir þessa hluti, er lítil manneskja sem ég sakna meira en orð fá lýst, hún gerði mig að þeirri manneskju sem ég er í dag og hennar vegna kann ég að meta lífið.
Í dag veit ég lítið sem ekkert um þessa yndislegu manneskju eða hvað hún er að gera, ég fæ ekki að fylgjast með henni, hvað þá sjá einstaka myndir, rétt til þess að sjá hversu falleg hún er. Ég mun alltaf finna til og sakna hennar, hún var ekki nema 18 mánaða þegar ég kynntist henni og hún hljóp í fangið á mér um leið. Ég er víst bara mannleg og hugsa stundum hvernig ég á að komast yfir þetta. Ef ég hefði ekki litla skottið mitt sem ég elska útaf lífinu þá myndi ég líklegast ekki getað brosað. Æji fann eitthvað til í kvöld og varð hugsi..
Kv Vala Laufey.
11janúar
Hæ hæ
Hef stundum verið að spá hvað maður á að segja mikið á svona bloggi. Hef oft verið að skrifa fullt en strokað það út því ég veit ekki alveg hvort það eigi heima hér. Á maður ekki bara að opna sig á svona heimasíðu og segja allt sem manni langar til eða hvað?